Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 30.12.2019

Opnað fyrir bókanir orlofshúsa 7. janúar kl.19:00

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2020 og fram á mitt ár 2021 sem hér segir:

  • Þann 7. janúar 2020 kl. 19:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2020 (tímabilið 29. maí til 30. ágúst), fyrir þá sem ekki hafa leigt orlofshús undanfarin þrjú sumur.
  • Þann 9. janúar 2020 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2017, 2018 eða 2019.
  • Þann 15. janúar 2020 kl. 10:00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 31. ágúst 2020 til 28. maí 2021.

Skrifstofa VR í Reykjavík verður opin að kvöldi 7. janúar frá kl. 18:50-19:30 og geta þeir félagsmenn, sem ekki bóka á vefnum, komið á skrifstofu félagsins til að bóka. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma 510 1700 frá kl. 19:00 þann sama dag.

Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.